Kona í haldi vegna heimilisofbeldis

Kona var handtekin í Grafarvogi um tvöleytið í nótt vegna heimilisofbeldis og er hún vistuð í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. 

Lögreglan hafði afskipti af tveimur ungum drengjum um áttaleytið í gærkvöldi en þeir voru að brjóta rúðu í Langholtsskóla. Samkvæmt dagbók lögreglu var málið afgreitt með aðkomu foreldra og tilkynningu til barnaverndar.

Um fjögurleytið í nótt var tilkynnt til lögreglu um eignaspjöll í Grafarvogi  en þar hafði maður brotið rúðu í bifreið. Eins er hann grunaður um brot á vopnalögum. Bifreiðin reyndist ótryggð og skráningarmerki klippt af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert