Gæti hlaupið á næstu dögum eða vikum

Mikið grjót hefur hrunið úr fjallinu og líklegt er að …
Mikið grjót hefur hrunið úr fjallinu og líklegt er að mikið muni falla þar til viðbótar. Hættulegt er að vera fyrir neðan bjargið, en það fellur úr því til suðausturs. Mynd/Árni B. Stefánsson

„Af myndunum að dæma gæti þetta hlaupið fljótlega og ég væri ekki hissa ef þetta myndi hlaupa fram á næstu dögum eða vikum.“ Þetta segir Jón Kristinn Helgason hjá ofanflóðadeild Veðurstofu Íslands, en í gær birti mbl.is myndir frá miklu berghlaupi frá Litlahöfða á Fjallabaki þar sem hundruð þúsunda rúmmetra af bergi skríða nú fram.

Jón segist vara fólk við að vera á ferð nálægt klettinum og að fyrir neðan hann eigi að vera algjört bannsvæði. Þá sé líka hættulegt að vera á ferð við brúnina sem geti verið mjög laus í sér. „Fólk ætti að halda sig í hæfilegri fjarlægð, það væri skynsamlegast,“ segir hann.

Jón segir að við fyrstu sýn virðist bergið vera krosssprungið og að fleygar séu í berginu. Það geti þýtt að hreyfingin í berginnu sé svokölluð snöruhreyfing, en þá ferðast efnið um ákveðinn miðjupunkt og mætti helst líkja því við massa í kringum kúlulaga kjarna.

Á þessari mynd sést berghlaupið greinilega. Hálf fjallshlíðin skríður þarna …
Á þessari mynd sést berghlaupið greinilega. Hálf fjallshlíðin skríður þarna áfram. Til að átta sig á hlutföllunum þá stendur Gunnhildur Stefánsdóttir á toppi fjallsins, en hún virkar mjög smá í þessu hrikalega landslagi. Mynd/Árni B. Stefánsson

Getur verið á hreyfingu í langan tíma áður en það hleypur fram

Í tilfellum sem þessum getur bergið hafa verið á hægri hreyfingu í einhvern tíma sökum viðnáms í berginu áður en það hleypur loksins fram. Slíkt var upp á teningnum við Öskjuvatn fyrir þremur árum, en svo kom mesta hreyfingin á 1-2 dögum að sögn Jóns. Einnig gæti bergið líka hlaupið fram í nokkrum áföngum.

Á annarri myndinni með fréttinni má sjá skriðutunguna sem þegar hefur myndast við brot úr klettinum og segir Jón að með hlaupi fari grjót líklega mun lengra en tungan er í dag. Annar möguleiki sé reyndar að það muni falla úr klettunum í nokkrum atrennum og þá hrúgist bjarg upp fyrir neðan klettana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert