Fá öll námsgögn ókeypis í Hveragerði

Grunnskólabörn í Hveragerði munu fá skólagögn ókeypis í haust.
Grunnskólabörn í Hveragerði munu fá skólagögn ókeypis í haust. mbl.is/Árni Sæberg

Hveragerðisbær hefur ákveðið að öll börn í grunnskólanum í Hveragerði fái ókeypis námsgögn þegar skólastarf hefst í haust. Ákvörðun um þetta var tekin við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 og samþykkt af öllum bæjarfulltrúum. 

Í tilkynningu frá bæjarfélaginu kemur fram að þetta sé liður í því að gera Hveragerðisbæ að betri búsetukosti fyrir barnafjölskyldur.

Nokkur önnur bæjarfélög hafa tekið samskonar ákvörðun, en áður hefur verið greint frá því að bæjarstjórnir í Reykjanesbæ og í Mosfellsbæ hafi ákveðið að öll nauðsynleg námsgögn í grunnskólum verði ókeypis fyrir skólabörn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert