Verið er að flytja mótorhjólamann sem slasaðist á Eyjafjarðarleið rétt um klukkan 13 í dag á sjúkrahús en taldar eru líkur á að hann sé fótbrotinn. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir að svo stöddu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi.
Maðurinn er fluttur á sjúkrahús með björgunarsveitarbifreið í samstarfi við sjúkraflutningamann á Akureyri.