Áfrýja ljósmæðradómi

mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Íslenska ríkið hefur óskað eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli ljósmæðra frá 30. maí sl. Þar var ríkið dæmt til að greiða fimm ljósmæðrum vangoldin laun fyrir vinnu sem þær inntu af hendi meðan á verkfalli Ljósmæðrafélags Íslands stóð vorið 2015. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá BHM.

„Margar ljósmæður náðu að skila nánast fullri vinnuskyldu í verkfallinu en engu að síður ákvað ríkið að halda eftir stórum hluta launa þeirra. Í dómi héraðsdóms var fallist í einu og öllu á kröfur stefnenda hvað varðar fjárhæðir vangoldinna launa og að auki var ríkið dæmt til að greiða þeim málskostnað.

Í áfrýjunarbeiðni ríkislögmanns f.h. ríkisins kemur fram að fjármála- og efnahagsráðherra, sem fer með mál er varða réttindi og skyldur starfmanna ríkisins, telji brýnt að dómur héraðsdóms sæti endurskoðun.

Áfrýjunarbeiðnin er köld kveðja til ljósmæðrastéttarinnar sem um þessar mundir er að búa sig undir að hefja kjaraviðræður við ríkið. BHM styður félagið í baráttu sinni enda samræmist það hvorki ákvæðum kjarasamninga né meginreglum vinnuréttar að starfsmenn fái ekki greitt fyrir þá vinnu sem þeir inna af hendi,“ segir í tilkynningu frá BHM. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert