Furðar sig á aðgerðarleysi stjórnvalda

Þær Mary 8 ára og Haniye 11 ára verða að …
Þær Mary 8 ára og Haniye 11 ára verða að óbreyttu sendar úr landi. Samsett mynd

„Okkar eina von er að dómsmálaráðherra og þeir sem stjórna þessum málaflokki grípi inn í,“ segir Sema Erla Serdar stofnandi samtakanna Solaris sem hafa boðað til mótmæla á Austurvelli næsta laugardag kl.15 vegna brottvísunar tveggja flóttafjölskyldna úr landi. Í báðum fjölskyldum eru stúlkur sem eru fæddar á flótta, þær Haniye, 11 ára, og Mary, 8 ára. 

Í ágúst voru und­ir­skrift­ir tæp­lega 15 þúsund Íslend­inga af­hent­ar full­trúa dóms­málaráðuneyt­is­ins, þar sem þess var kraf­ist að mál af­ganskra feðgina og níg­er­ískr­ar fjöl­skyldu sem vísa á úr landi verði end­ur­skoðuð. 

Að öllu óbreyttu verður þeim vísað úr landi. „Ekki nema einhver ný gögn koma. Það er alltaf möguleiki,“ segir Sema Erla. 

Hvert erum við komin?

„Fólki er misboðið. Við krefjumst þess að þau fái að dvelja hér. Á hvaða stað erum við komin þegar börn sem þekkja ekkert annað en að vera á flótta fá ekki að vera hér? Sérstaklega þar sem staða þeirra er talin „sérstaklega viðkvæmum“ eins og kemur fram í úrskurði frá stjórnvöldum,“ segir Sema Erla. Hún bendir einnig á að bæði lög um útlendinga og Barnasáttmáli Sameinuðu Þjóðanna er brotinn með fyrirhugaðri brottvísun stúlknanna og fjölskyldna þeirra.  

Hátt í níu hundruð manns hyggjast mæta á mótmælin á Austurvelli samkvæmt tilkynningu um viðburðinn á Facebook, ekki í okkar nafni: stöðvið brottvísun Haniye & Mary!

 „Þetta kemur ekki á óvart því Íslendingar vilja að við tökum á móti fleira flóttafólki. Þetta sýnir í raun þessa miklu gjá á milli vilja fólksins í landinu og stjórnvalda sem sýna algjört afskiptaleysi. Það kemur virkilega á óvart,“ segir Sema Erla spurð hvort viðbrögðið og fjöldi þeirra sem hyggjast mæta hafi komið henni á óvart.  

Sema Erla segir að þrátt fyrir að staðan sé ekki góð eins og stendur þá „gefumst við ekki upp.“

Sema Erla Serdar afhenti undirskriftir til dómsmálaráðuneytisins vegna mála nígerískra …
Sema Erla Serdar afhenti undirskriftir til dómsmálaráðuneytisins vegna mála nígerískra hjóna og afganskra feðgina sem á að vísa úr landi. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert