Grunur um heimilisofbeldi

Karlmaður var handtekinn af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi grunaður um heimilisofbeldi. Hann er vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins. Flest önnur mál í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu tengjast neyslu fíkniefna. 

Á tæpum tveimur klukkustundum í gærkvöldi stöðvaði lögreglan fjóra ökumenn vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum fíkniefna við aksturinn og einn þeirra var einnig undir áhrifum áfengis. Einn ökumaður var stöðvaður sem hafði verið sviptur ökuréttindum.

Lögreglan hafði síðan afskipti af þremur einstaklingum vegna vörslu fíkniefna á tæpum tveimur klukkustundum í gærkvöldi.

Einn var tekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna á Akureyri í gærkvöldi að sögn lögreglunnar þar í bæ. Að öðru leyti var vaktin róleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert