Vatnsleki í íþróttahúsi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var í langan tíma að hreinsa upp vatn úr kjallara íþróttahússins við Strandgötu í Hafnarfirði í morgun.

Að sögn varðstjóra í slökkviliðinu er væntanlega ekki um mjög mikið tjón að ræða en mikið vatn var yfir öllu í kjallara hússins og tók nokkrar klukkustundir að hreinsa það upp eftir óveðrið í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert