Eldur kom upp í kyrrstæðri bifreið við Kolaportið í Reykjavík um klukkan ellefu í morgun, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Ekki liggur fyrir hvað olli því að það kviknaði í bifreiðinni en hún var mannlaus þegar það gerðist. Bifreiðin er gjörónýt en ekki varð tjón á öðrum bifreiðum
Greiðlega gekk að slökkva eldinn.