Engin merki um gosóróa

Bárðarbunga.
Bárðarbunga. mbl.is/Þórður

Tveir skjálftar, báðir yfir fjögur stig, riðu yfir við Bárðarbungu í nótt. Engin merki eru um gosóróa, segja sérfræðingar á jarðvársviði Veðurstofu Íslands.

„Í nótt kl. 04.57 varð skjálfti af stærð 4,1 í norðanverðri öskju Bárðarbungu. Kl. 05.29 mældist annar skjálfti af stærð 4,4. Fáir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, en enginn merki eru um gosóróa,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert