Seinkun á millilandaflugi

Seinkun er á öllu millilandaflugi um Keflavíkurflugvöll og er áætlað að vélar sem áttu að lenda frá klukkan 4:50 til 10:20 byrji að lenda á flugvellinum klukkan 8:50. Jafnframt er búið að seinka öllu flugi frá landinu.

Flugvélar WOW air sem áttu að fara í loftið frá klukkan 6 til 6:30 fara frá Keflavíkurflugvelli frá klukkan 10 til 13:20. Vélar Icelandair sem fara áttu frá klukkan 7:30 til 8 fara ekki fyrr en 9:15 til klukkan 10.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert