Suðurlandsvegur lokaður vegna slyss

Suðurlandsvegur er lokaður vegna umferðarslyss á móts við Bitru í Flóahreppi í Árnessýslu og verður vegurinn lokaður um óákveðinn tíma.

Umferð er beint um Urriðafossveg og Villingaholtsveg á meðan.

Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo komnu máli, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert