Njóta ekki góðs af vexti í atvinnulífi

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Ljósmynd/ Steinar H.

Aukinn fjöldi þeirra sem eru með háskólamenntun er ein af ástæðunum fyrir því hve margir úr þeim hópi eru á atvinnuleysisskrá. Einnig hefur vöxturinn í atvinnulífinu ekki skilað sér nægilega mikið í störfum fyrir háskólamenntað fólk.

Þetta segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar.

Í bréfi hans til forstöðumanna stofnana ríkisins og framkvæmdastjóra sveitarfélaga kom fram að 150 viðskiptafræðingar séu í atvinnuleit, 54 lögfræðingar, 33 kennarar og 18 verk- og tæknifræðingar. Tæplega 900 manns með háskólamenntun af öðru tagi eru á skrá Vinnumálastofnunar.

Samtals er atvinnulaust fólk með háskólamenntun því yfir 1.100 talsins, sem er um fjórðungur af þeim sem eru á skrá hjá Vinnumálastofnun.

Atvinnuleysi hefur minnkað mikið, sérstaklega í byggingastarfsemi og ferðaþjónustu.
Atvinnuleysi hefur minnkað mikið, sérstaklega í byggingastarfsemi og ferðaþjónustu. mbl.is/Golli

Gissur segir gott fyrir samfélagið í heild að fleiri séu með háskólamenntun en best væri ef fólkinu byðust störf við hæfi.

„Ég hef haft áhyggjur af því að þessi vöxtur í atvinnulífinu, sem hefur kannski fyrst og fremst verið á sviði byggingastarfsemi og ferðaþjónustu, hafi ekki skilað sér nægilega mikið í störf fyrir háskólamenntað fólk. Það er ein skýringin,“ segir hann.  

Óskastarfið ekki alltaf til boða

Þrátt fyrir að almennt hafi dregið úr atvinnuleysi segir hann þróunina ekki hafa verið eins hraða í þessum hópi. „Við erum að reyna að örva okkar samstarfsaðila, alla vega hjá þessum opinberu stofnunum og fyrirtækjum, hvort þau gætu séð möguleika á að búa til starfsþjálfunartækifæri,“ bætir Gissur við en nefnir þó að mikil spurn sé eftir heilbrigðismenntuðu starfsfólki.

Hann segir fjármálakerfið ekki vera að búa til störf í nægilega miklu magni og þeim fari frekar fækkandi. Á sama tíma sé mikil sókn í viðskiptafræðinám í háskólum.

„Það væri kannski betra fyrir menn sem eru í atvinnuleit og í leit að draumastarfinu að taka starf sem er kannski ekki óskastarfið og leita þá þaðan,“ segir Gissur og bendir á að þannig geti menn fengið möguleika til að sanna sig á atvinnumarkaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert