Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur foreldra á Facebook-síðu sinni til að fylgja börnum sínum í skólann nú í morgun, en Veðurstofan sendi í gær frá sér appelsínugula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og Norðurland vestra.
„Veður getur seinkað ferðum nemenda til skóla. Skólar eru opnir, en mikilvægt er að foreldrar gæti þess að yngri börn fari ekki ein í skóla, þetta á sérstaklega við í efri byggðum og þar sem börn þurfa að fara yfir opin svæði á leið sinni í skóla,“ segir í færslunni og er tekið þar fram að með yngri börnum eigi lögegla við þau börn sem eru 12 ára og yngri.
Gul viðvörun er í gildi alls staðar annars staðar á landinu og er spáð er allt að 23-28 m/s og snjókomu og slæmu skyggni í efri byggðum og austur frá Reykjavík.