Vegurinn um Súðavíkurhlíð opinn

Vegurinn um Súðavíkurhlíð nú á þriðja tímanum.
Vegurinn um Súðavíkurhlíð nú á þriðja tímanum. Ljósmynd/Vegagerðin

Veðrinu hefur slotað og ófanflóðahætta sem skapaðist yfir Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð er talin liðin hjá að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum. Vegurinn er því opinn.

Lögreglan hvetur vegfarendur til að að fylgst sé með færð og veðri á heimasíðu Vegagerðarinnar og einnig má hringja í upplýsingasíma hennar, 1777.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert