Heimsþing kvenleiðtoga næstu 4 ár

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ásamt Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis og …
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ásamt Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis og Silvana Koch-Mehrin, stofnanda WPL, Global Forum. Ljósmynd/Stjórnarráð Íslands

Ríkisstjórn Íslands og Alþingi hafa gert samkomulag við WPL, Women Political Leaders, Global Forum um að efna til Heimsþings kvenleiðtoga á Íslandi ár hvert næstu fjögur ár.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Ákvörðunin er tekin í framhaldi af fjölmennum ársfundi WPL sem haldinn var á Íslandi í fyrra og þeim mikla áhuga sem þar kom fram á stöðu Íslands og árangri þegar kemur að jafnrétti kynjanna.

Ísland hefur í níu ár mælst fremst meðal þjóða heims þegar kemur að stöðu kvenna, segir í tilkynningunni.

Þegar við bætist vilji Íslands til gera enn betur og miðla af eigin reynslu til annarra þjóða, varð niðurstaðan sú að Ísland væri staður til að efna til alþjóðlegs samtals kvenleiðtoga um jafnrétti, breytingar og framtíðina.

Heimsþing kvenleiðtoga verður haldið í Hörpu í Reykjavík árlega í nóvember frá árinu 2018 til ársins 2021.

Til heimsþingsins verður boðið alþjóðlegum kvenleiðtogum úr stjórnmálum; ríkisstjórnum og þjóðþingum sem eiga aðild að WPL; auk alþjóðlegra kvenleiðtoga úr viðskiptum, menningu, vísindum, tækni og fleiru. 

Yfirskrift heimsþinganna fjögurra verður WE CAN DO IT.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert