Var búinn að gleyma að hann ætti miða

Vinningshafi sem vann 52 milljónir króna í lottó fyrir um mánuði gaf sig nýverið fram á skrifstofu Íslenskrar getspár. Vinningshafinn var búinn að gleyma því að hann hefði keypt lottómiða. 

Fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá að vinningshafinn hafi keypt miðann í Póló á Bústaðavegi í Reykjavík.

„Það kom í ljós að þessi stálheppni Reykvíkingur hafði ekki hugmynd um að leitað væri að miðanum og var búin að steingleyma að hann hefði átt miða í þessum milljónaútdrætti.  Það var ekki fyrr en hann kom við á Olís við Ánanaust að honum varð ljóst að hann hefði unnið stórar fúlgur fjár.  Þar lét hann fara yfir nokkra miða og þegar kom að þessum eina sanna kom vinningshljóðið kassann og honum var tilkynnt um milljónirnar fimmtíuogtvær,“ segir í tilkynningunni.

„Kannski kaupi ég mér íbúð,“ lét vinningshafinn hafa eftir sér þegar hann inntur eftir því hvort hann væri farinn að láta hugann reika um ráðstöfun á vinningnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert