Um 600 manns hafa keypt pakkaferðir hjá Icelandair á leik Íslands og Argentínu á HM í Rússlandi.
Eitthvað hefur verið um afbókanir í pakkaferðir á leikinn hjá þeim sem fengu ekki miða á hann en þær hafa samt verið sárafáar, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair.
Lítið hefur verið um að fólk hafi flutt sig yfir á annan leik Íslands á mótinu í staðinn.
Ef einhver sæti losna í ferðirnar verða þau sett á markað á mánudaginn og má fylgjast með upplýsingum um það á vefsíðu Icelandair.