Jafnlaunavottun rædd á BBC

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/​Hari

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að lögum um jafn­launa­vott­un sé ætlað að tryggja jöfn laun á Íslandi óháð kyni, kynferði eða uppruna. Í dag sé kynbundin launamunur 4,8% á Íslandi en rætt var við Katrínu um málið á BBC í dag.

Lög um jafn­launa­vott­un sem tóku gildi í upp­hafi árs­ins en þau voru samþykkt þegar Þorsteinn Víglundsson var fé­lags- og jafn­rétt­is­málaráðherra. Er­lend­ir fjöl­miðlar hafa fjallað mikið um lögin enda Ísland fyrsta ríkið sem lögfestir jöfn laun fyrir alla.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert