Frumvarp um jafnlaunavottun lagt fram á Alþingi

Kynbundinn launamunur á almennum markaði hefur lækkað.
Kynbundinn launamunur á almennum markaði hefur lækkað. mbl.is/Helgi Bjarnason

Frumvarp Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, sem kveður á um lögfestingu skyldu til jafnlaunavottunar meðal fyrirtækja með 25 eða fleiri starfsmenn, var lagt fram á Alþingi í gær.

Meginmarkmið frumvarpsins er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Í tilkynningu á vef ráðuneytisins kemur fram að Þorsteinn Víglundsson bindi miklar vonir við að jafnlaunavottun verði raunverulegt tæki til að sporna við kynbundnum launamun sem er því miður enn veruleiki á Íslandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert