Enn snjóflóðahætta til fjalla

AFP

Eftir lægðagang undanfarið er töluverður snjór til fjalla á jöklum og hálendinu. Sleðamenn komu af stað snjóflóði í Skriðutindum á mánudag og segja mikið vera af flóðum á því svæði. Á fimmtudag í síðustu viku lentu menn í snjóflóði á Grímsfjalli.

Á laugardag og hvítasunnudag snjóaði einnig talsvert til fjalla sums staðar á norðan- og vestanverðu landinu. Í fjöllum umhverfis Ísafjörð var um 20 cm nýsnævi til fjalla á mánudag. Á mánudag lenti göngumaður í snjóflóði í Hrafnagili (líka nefnt Grænagarðsgil) við Skutulsfjörð. Líklega setti hann flóðið af stað sjálfur upp undir brún og barst með því niður í gilkjaft.

„Það er því ástæða til að minna á að enn er vetur til fjalla inn til landsins og sums staðar talsverð snjóflóðahætta á jöklum og hálendinu. Einnig er minnt á að þótt lítill snjór sé til fjalla meðfram ströndinni þarf ávallt að fara með gát þar sem nýsnævi er í bröttum brekkum. Það getur verið hættulegt að setja af stað lítið flóð, ef afleiðingar falls eru alvarlegar,“ segir í frétt á vef Veðurstofu Íslands frá því í gær.

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert