Um 2.500 mættu í Zaryadye-garðinn

Mikil stemning var á meðal stuðningsmannanna.
Mikil stemning var á meðal stuðningsmannanna. Ljósmynd/Aðsend

Talið er að rúmlega 2.500 stuðningsmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu hafi mætt í upphitunargleði í Zaryadye-garðinum í Moskvu í gær fyrir leik Íslands og Argentínu.

Viðburðurinn var skipulagður af sendiráði Íslands í borginni, utanríkisráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Íslandsstofu og Tólfunni – stuðningssveit íslensku landsliðanna.

Fram kemur í tilkynningu að gríðarlegur áhugi hafi verið  meðal erlendra fjölmiðla á viðburðinum og stemmningunni í íslenska stuðningsmannahópnum.

Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir stigu á stokk.
Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir stigu á stokk. Ljósmynd/Aðsend

Tólfan stýrði upphituninni en á svið stigu einnig Bergur Ebbi Benediktsson, Halldór Laxness Halldórsson og bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir.

„Skipuleggjendur vilja koma á framfæri þakklæti til borgaryfirvalda í Moskvu og allra þeirra fjölmörgu er hjálpuðu til við að gera þennan skemmtilega viðburð að veruleika. Hátíðin fór vel fram, hún stóð í tæpar tvær klukkustundir en að henni lokinni voru stuðningsmennirnir samferða á Spartak-leikvöllinn,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert