Tafir á umferð um Sæbraut

Malbikað er á Sæbraut, frá Katrínartúni að Kringlumýrarbraut.
Malbikað er á Sæbraut, frá Katrínartúni að Kringlumýrarbraut. mbl.is/Golli

Verið er að malbika á Sæbraut í akstursstefnu til vesturs, frá Kringlumýrarbraut að Katrínartúni. Unnið er á einni akrein í einu og má búast við lítils háttar umferðartöfum milli kl. 9:00 og 19:00, segir í frétt frá Vegagerðinni.

Hálendisvegir eru óðum að opnast, t.a.m. er Kjölur opinn þótt hann sé enn ekki fær fólksbílum. Tvær leiðir af þremur inn í Landmannalaugar eru opnar. Á Austurlandi er opið inn í Kverkfjöll og eins er opið inn í Öskju og raunar alveg inn að Holuhrauni.

Engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert