Um 90 fíkniefnamál komu upp í tengslum við tónlistarhátíðina Secret Solstice, sem haldin var í Laugardalnum um helgina. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði aðallega hald á kannabisefni, en einnig ætlað kókaín, amfetamín, MDMA og e-töflur.
Í tilkynningu frá embættinu kemur fram að við eftirlitið hafi lögreglan notið aðstoðar tveggja fíkniefnaleitarhunda og reyndust þeir mjög vel. Eitthvað var um pústra á hátíðinni, en níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu.
Eins og vænta mátti var ástand gesta misjafnt og þurfti að fjarlæga einhverja þeirra af svæðinu af þeirri ástæðu. Nokkuð var um kvartanir íbúa í nágrenninu vegna hávaða frá hátíðinni, en tilkynningarnar voru vel á annan tug.