Jarðskjálfti í Öræfajökli

Jarðskjálfti af stærð 3,1 mældist í Öræfajökli klukkan 16:57 í …
Jarðskjálfti af stærð 3,1 mældist í Öræfajökli klukkan 16:57 í dag. mbl.is/Rax

Jarðskjálfti upp á 3,1 stig varð í Öræfajökli rétt fyrir klukkan fimm. Nokkrir minni skjálftar hafa mælst í kjölfarið en enginn gosórói. 

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands fannst skjálftinn í Öræfum. 

Töluverðar jarðhræringar hafa verið við jökulinn síðustu vikur, en skjálfti af stærð 2,7 mældist í öskju jökulsins á fimmtudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert