Pia hæstánægð með Íslandsför

Pia Kjærs­ga­ard, forseti danska þingins.
Pia Kjærs­ga­ard, forseti danska þingins. mbl.is/​Hari

Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins, segir mikinn heiður að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í hátíðarþingfundinum á Þingvöllum í gær. Þetta kemur fram í færslu sem hún birtir á Facebook.

Pia er heilluð af Þingvöllum. Hún rifjar upp 1100 ára sögu Alþingis, sem lengst af var háð á Þingvöllum og segir anda sögunnar svífa yfir vötnum. Þá sé auðvelt að ímynda sér hvernig hraunið getur litið út eins og tröll og veitt Íslendingum innblástur í sögur um hinar goðsagnakenndu verur.

Með færslunni birtir Pia mynd af sér og Vigdísi Finnbogadóttur, sem hún segir ánægjulegt að hafa fengið að hitta.

Pia Kjærsgaard var ræðumaður á hátíðarþingfundinum í gær og óhætt að segja að koma hennar hafi sett svip sinn á fundinn.

Þingflokkur Pírata sniðgekk til að mynda fundinn í mótmælaskyni við það að Piu skyldi boðið og þá gekk Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, á braut þegar Pia steig í ræðustól.

Pia er einn stofnenda danska þjóðernisflokksins Dansk Folkeparti. Hún hef­ur ít­rekað kom­ist í frétt­ir fyr­ir um­mæli sín um út­lend­inga m.a. lét hún þau orð falla í frétta­bréfi flokks­ins árið 2001 að múslim­ar væru fólk sem „lygi, svindlaði og blekkti“. Var hún kærð fyr­ir þessi um­mæli en sak­sókn­ari lét málið niður falla. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert