552 umsækjendum synjað

Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri. Ljósmynd/Auðunn

Umsóknir um nám við Háskólann á Akureyri fyrir skólaárið 2018/2019 slógu öll fyrri met og var endanleg tala umsókna 2.083. Þann 3. júlí var búið að samþykkja 1.531 umsókn en 552 umsækjendum hefur verið synjað eða þeir ekki sent inn fullnægjandi gögn með umsóknum sínum. 

Það eru því einungis 74% umsækjenda sem fá boð um skólapláss, að því er segir í tilkynningu frá skólanum.

„Í þessu felst mikil stefnubreyting frá fyrri árum og ljóst að stjórnvöld þurfa að gefa skýr skilaboð um það hvernig takast eigi á við umframeftirspurn eftir námi við Háskólann á Akureyri,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir, að fyrri greiðslufrestur fyrir nemendur sem hafa fengið boð um skólavist hafi verið 10. júlí, en fyrir þá sem ekki greiddu fyrir þann tíma sé mögulegt að greiða, með álagi, seinni greiðslufrest sem er 10. ágúst. Endanleg tala um fjölda nemenda sem hefja nám við HA í haust verður því ekki ljós fyrr en um miðjan ágúst.

„Af 552 umsóknum sem ekki hafa verið samþykktar var 286 skilað inn án fullnægjandi gagna en öðrum hefur verið hafnað þar sem viðkomandi hefur ekki uppfyllt kröfur um einingafjölda frá framhaldsskólum, úr verknámsskólum eða öðru námi sem stundað er á framhaldsskólastigi,“ segir í tilkynningunni. 

Nánar á vef háskólans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert