Stríð milli stjórnsýslu og kjörins fulltrúa

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, segist ekki ætla að tjá sig efnislega um bréf sem Helga Björg Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri borgarstjóra, sendi forsætisnefnd. Helga fjallar þar um alvarleg og meiðandi ummæli borgarfulltrúa en umræddur borgarfulltrúi er ekki nefndur á nafn.

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur dæmdi Reykja­vík­ur­borg í síðasta mánuði til að greiða bæt­ur vegna slæmr­ar fram­komu skrif­stofu­stjóra skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara. Auk þess var skrif­leg áminn­ing sem Reykja­vík­ur­borg hafði veitt starfs­mann­in­um ógilt.

Vigdís segir að hún muni leggja fram nýjar upplýsingar í málinu á fundi borgarráðs á morgun. 

Helga sagði í bréfinu til forsætisnefndar að í dómi héraðsdóms komi hvergi fram að um einelti hafi verið að ræða. Hún óskar einnig eft­ir því að tekið verði til skoðunar hvort til­efni sé til að leita álits siðanefnd­ar Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga á um­mæl­um ein­stakra borg­ar­full­trúa um hana í umræðum um dóms­málið.

„Ég lýsi yfir mikilli undrun á því að stjórnsýsla Reykjavíkur skuli bregðast svona við hinum alvarlega dómi héraðsdóms að beina athyglinni að kjörnum fulltrúa og nánast hóta mér málsókn í stað þess að líta í eign barm og laga málin innanhúss,“ segir Vigdís og bætir við að málið sé orðið að stríði milli stjórnsýslu borgarinnar og kjörins fulltrúa.

„Þessi dagur í dag hefur verið ævintýralegur. Engum okkar datt í hug að dagurinn yrði með þessum hætti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert