Innheimtu veggjalds hætt 28. september

Innheimtunni verður hætt í lok mánaðarins.
Innheimtunni verður hætt í lok mánaðarins. mbl.is/Árni Sæberg

Spölur stefnir að því að afhenda Vegagerðinni Hvalfjarðargöng til eignar og rekstrar sunnudaginn 30. september 2018. Innheimtu veggjalds yrði þá hætt föstudaginn 28. september.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Stjórn Spalar hefur tilkynnt hluthöfum félagsins þessa ákvörðun sína en tekur jafnframt fram að tímasetningin sé kynnt að þeim forsendum gefnum að Ríkisskattstjóri fallist á tiltekna meðferð á skattalegri afskrift ganganna og í öðru lagi að Samgöngustofa skili fyrirvaralausri úttekt á göngunum í aðdraganda eigendaskiptanna.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið tilkynnti stjórn Spalar 7. maí að ríkið myndi ekki yfirtaka félögin sem eiga og reka göngin.

Í júní leitaði stjórn Spalar álits Ríkisskattstjóra á hvernig fara skyldi með skattalega afskrift ganganna og hugsanlega skattlagningu Spalar á árinu 2018.

Svar hefur ekki borist við erindinu, að því er segir í tilkynningunni, en þess er vænst að viðunandi botn fáist í málið í tæka tíð svo unnt sé að afhenda göngin í lok september.

Spölur gerir upp við viðskiptavini sína

Spölur mun á næstu mánuðum gera upp við viðskiptavini sína: taka við veglyklum gegn 3.000 króna skilagjaldi, taka við og endurgreiða ónotaða afsláttarmiða og greiða út inneignir á áskriftarreikningum notenda veglykla.

Viðskiptavinir hafa frest til 30. nóvember til að skila veglyklum og afsláttarmiðum.

Áskriftarsamningar Spalar eru liðlega 20 þúsund og yfir 53 þúsund veglyklar eru í umferð.

Í ljósi þess að uppgjörsmálin skipta tugum þúsunda áskilur Spölur sér lengri frest en 30 daga til að afgreiða þau öll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert