„Við erum afar þakklát fyrir að vera komin með um 18.000 manna hóp sem er tilbúinn að standa við bakið á starfi slysavarnadeilda og björgunarsveita um allt land,“ segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.
Um eitt þúsund nýskráningar bárust í svokallaða Bakvarðasveit Landsbjargar í tengslum við söfnunarþátt félagsins á föstudag. Bakverðir Landsbjargar styrkja félagið mánaðarlega með föstum framlögum. Þá styrktu bæði einstaklingar og fyrirtæki félagið um stakar upphæðir þegar á þættinum stóð.
„Þetta er ótrúlegur velvilji sem við upplifum í samfélaginu til okkar sjálfboðaliða,“ segir Davíð.
Áhorfendum styrktarþáttarins gafst tækifæri á að fá innsýn í starf Landsbjargar, en sýnt var frá þremur slysavarnaæfingum. Ljósmyndari mbl.is fór á Suðurnes og myndaði æfingu á viðbragðsáætlun vegna hópslysa í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum.