IKEA er að innkalla CALYPSO-loftljós með ákveðna dagsetningarstimpla vegna hættu á að glerkúpullinn losni.
Um er að ræða CALYPSO-loftljós keypt eftir 1. ágúst 2016. Innköllunin nær til allra CALYPSO-loftljósa með dagsetningarstimpla 1625 til 1744 (áávv).
IKEA hafa borist tilkynningar um að glerkúplar ljóssins hafi losnað og til að lágmarka áhættu eru ljós sem framleidd voru á ákveðnu tímabili innkölluð, segir í fréttatilkynningu en í henni er farið yfir það hvernig best sé að losa ljósið.