Ari Rúnarsson, sem alþjóðalögreglan Interpol lýsti eftir í síðasta mánuði, er kominn til landsins og því ekki lengur eftirlýstur að sögn Arnfríðar Gígju Arngrímsdóttur, aðstoðarsaksóknara hjá embætti héraðssaksóknara.
Ari sem var eftirlýstur fyrir vopnað rán og líkamsárás var viðstaddur fyrirtöku á ákæru gegn sér við Héraðsdóm Norðurlands eystra í síðustu viku.
Hann var ásamt öðrum manni ákærður hjá embætti héraðssaksóknara fyrir að hafa veist að karlmanni með ofbeldi og hótunum á bifreiðastæði bak við Nætursöluna við Strandgötu á Akureyri í október í fyrra.
Annar hinna ákærðu var ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa slegið manninn með flösku í höfuðið, kýlt hann ítrekað í andlit og höfuð og sparkaði í fótleggi hans. Þá hótuðu þeir að drepa manninn og grafa í holu úti í sveit, auk þess að „búta niður kærustu hans, skera hann á háls og stinga hníf upp í heila hans,“ eins og það er orðað í ákærunni.
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir segir Ara ekki hafa sætt neinum þvingunarúrræðum fyrir útgáfu ákæru í málinu og að ekki hafi verið talin þörf á að gera breytingu í þeim efnum.