Tveir af þeim þremur mönnum sem voru handteknir vegna rannsóknar á máli sem snýr að ætluðum brotum á almennum hegningarlögum, lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga hafa verið úrskurðaðir í farbann.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum að allir þrír mennirnir hafi setið í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins.
„Mikilvægt er að rannsaka alla þætti þessa máls og stendur sú rannsókn enn. Á þessu stigi mun lögregla ekki tjá sig um einstök atriði hennar,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.
RÚV greindi frá því á laugardag að erlendur maður hafi setið í gæsluvarðhaldi í hálfan mánuð vegna gruns um að hann hafi stundað vinnumansal. Maðurinn var sagður pakistanskur og talinn hafa flutt tugi manna til Íslands yfir um tveggja ára skeið og suma þeirra á fölsuðum skilríkjum.
Fram kom að maðurinn hafi verið handtekinn ásamt tveimur samlöndum sínum við komuna á Keflavíkurflugvöll fyrir hálfum mánuði.