Tveir unnu tvo milljarða

Norðmenn unnu þrjár stærstu vinningana í Víkingalottóútdrætti kvöldsins.
Norðmenn unnu þrjár stærstu vinningana í Víkingalottóútdrætti kvöldsins.

Tveir Norðmenn duttu í lukkupottinn í útdrætti kvöldsins í Víkingalottó og skipta með sér fyrsta vinningi. Hvor þeirra hlýtur rúma tvo milljarða króna.

Annar vinningur kom einnig í hlut Norðmanns og hlýtur hann tæpar 79 milljónir króna í vinning. 

Sjö voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Tveir miðanna voru keyptir hjá N1 í Háholti í Mosfellsbæ, tveir hjá Vídeómarkaðnum í Hamraborg í Kópavogi og þrír miðanna voru keyptir á Lotto.is. 

Þó að Íslendingar hafi ekki unnið stóra vinninginn í kvöld voru alls 6.535 vinningshafar á Íslandi í útdrætti kvöldsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert