Banaslys varð á Sæbraut

mbl.is

Banaslys varð á Sæbraut í dag þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Sæbraut var lokað í vesturátt frá Kringlumýrarbraut vegna slyssins.

Slysið varð um klukkan 11.30 og var vegfarandinn fluttur á slysadeild. 

Uppfært kl. 19.05:

RÚV greindi frá að erlendur karlmaður hafi látist. Tildrög slyssins eru ókunn og hefur lögreglan óskað eftir því að vitni gefi sig fram annað hvort í síma 444-1000 eða í gegnum netfangið gudmundur.pall@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert