Fjórir heppnir miðaeigendur skiptu með sér 45 milljóna króna fyrsta vinningi í nóvemberútdrætti Happdrættis Háskólans en dregið var í kvöld.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Talan 512 var dregin út sem 1. vinningur í aðalútdrættinum. Fjórir miðaeigendur eiga röð í þessu númeri og skiptu þeir því með sér 45 milljónum króna.
Einn miðaeigandi fékk 25 milljónir á trompmiða, annar fékk 10 milljónir á tvöfaldan miða og tveir fengu 5 milljónir hvor á sinn miða. Fimm miðaeigendur fengu milljón króna vinning og sautján fengu 500.000 krónur í sinn hlut.
Samtals hafa hafa 3.367 vinningshafar skipt með sér rúmum 139 milljónum króna á þessu ári. Milljónaveltan gekk ekki út í kvöld og því verður þreföld vinningsupphæð í pottinum í desember eða 30 milljónir króna.