Ofurölvi þjófur

mbl.is

Lögreglan handtók síðdegis í gær mann sem var að stela úr verslun í hverfi 105. Þjófurinn var óviðræðuhæfur vegna ölvunar og gistir fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann.

Á ellefta tímanum í gærkvöldi barst lögreglunni tilkynning um innbrot í húsnæði í Vesturbæ Reykjavíkur. Sá sem grunaður er um innbrotið var handtekinn skömmu síðar.

Um þrjú í nótt var síðan tilkynnt um innbrot í húsnæði á Kársnesi. Sá sem er grunaður um innbrotið var handtekinn stuttu síðar og er hann vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Einn ökumaður var stöðvaður í nótt vegna ölvunaraksturs í hverfi 108.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert