Segir ummælin ósmekkleg

Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins.
Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, fjallar á Facebook um ummæli Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þingmanns Miðflokksins, í útvarpsþættinum Í Bítið á Bylgjunni í gærmorgun. Segir Jón ummæli hennar um starfsmenn Alþingis ósmekkleg og tóku Svandís Svavarsdóttir, Þorsteinn Víglundsson og Helga Vala Helgadóttir undir það með Jóni í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. 

„Þar fór hún meðal annars orðum um Alþingi og starfsmenn þess sem fólu í sér afar ósmekklega aðdróttun um að starfsmenn Alþingis væru með einhverjum hætti hluti af einhverjum kúltúr sem umræðan á Klaustri væri sprottin af.

Hún sagði m.a:

„Við höfum kannski stundum haldið að þetta sé fólkið að þetta séu alþingsmenn sem skapa þennan kúltúr en ég er svolítið farin að efast um að það séu bara alþingsmenn.“

og síðar:

„Ég er að tala um stofnunina Alþingi vegna þess að starfsmennirnir, það eru allir mannlegir, þeir fara líka inn í þennan kúltúr þegar þeir fara þarna. [...] Það er samt eitthvað þarna sem er óáþreifanlegt.“

Þessi ummæli Önnu Kolbrúnar eru afar ómakleg og henni ekki til sóma.

Ég held að varla finnist betri hópur af samviskusömu, kláru og hjálpsömu fólki sem gætir þess í hvívetna að vega hvorki að virðingu þings né þingmanna,“ segir Jón Steindór í færslu sinni á Facebook í gær.

Ítarlegt viðtal var við Önnu Kolbrúnu í Morgunblaðinu í gær

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert