Hjálparsveit skáta í Hveragerði var í dag kölluð út vegna konu sem tilkynnt var um að hefði slasast í Reykjadal ofan Hveragerðis.
Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg konan sé ógangfær en ekki sé þó talið að hún sé alvarlega slösuð.
Tveir hópar björgunarmanna eru á leið á staðinn þar sem slysið átti sér stað og munu flytja konuna niður að sjúkrabifreið sem flytur hana á sjúkrahús.