Byggja áningarhólf að Fjallabaki

Kvennareið að Fjallabaki. Landslagið á friðlandinu er stórbrotið og fjölbreytt.
Kvennareið að Fjallabaki. Landslagið á friðlandinu er stórbrotið og fjölbreytt. mbl.is/Árni Sæberg

Umhverfisstofnun hefur fyrir sitt leyti fallist á umsókn Hestamannafélagsins Geysis um að byggja áningarhólf fyrir hesta innan friðlandsins að Fjallabaki.

Fram kemur í umsögn Umhverfisstofnunar að markmiðið með framkvæmdinni sé að stýra því hvar ferðamenn á hestum stoppi hrossarekstra innan svæðisins og minnka þannig rask á viðkvæmu landi. Árið 2018 höfðu viðkomu í Landmannahelli um 30 hópar hestamanna með alls um 1.275 hross á leið sinni í Landmannalaugar. Segir stofnunin, að slíkur fjöldi hrossa geti valdið þónokkru raski á svæðinu og viðkvæmur gróður svæðisins þoli illa slíkan ágang.

Stefnt er að því að setja upp hólfið í sumar við Frostastaðavatn en skipulögð reiðleið liggur þar um. Nákvæm staðsetning liggur ekki fyrir, en miðað verður við að setja hólfið niður þar sem lítill eða enginn gróður er fyrir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert