Hvetja ráðherra til að ljúka friðlýsingu

Framkvæmdir hafa staðið fyrir skammt frá garðinum.
Framkvæmdir hafa staðið fyrir skammt frá garðinum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, er hvött til að ljúka friðlýsingu Víkurkirkjugarðs, alveg að austustu mörkum hans, eins og þau voru árið 1838. Þetta kom fram í ályktun baráttufundar um verndun Víkurkirkjugarðs í Iðnó í dag.

Í tilkynningu vegna fundarins segir að fundarmenn hafi fylkt sér að baki Vigdísi Finnbogadóttur, Friðriki Ólafssyni og Þorgerði Ingólfsdóttur í baráttu fyrir verndun Víkurkirkjugarðs.  Að fundi loknum gengu fundarmenn í Víkurkirkjugarð og sungu þar saman.

Minja­stofn­un Íslands til­kynnti 8. janúar að ákveðið hefði verið að skyndifriða þann hluta Vík­ur­kirkju­g­arðs sem er inn­an bygg­inga­svæðis­ins á Lands­s­ímareitn­um svo­nefnda við Aust­ur­völl.

Skyndifriðunin, sem tók gildi sam­stund­is, gild­ir í allt að sex vik­ur eða þar til ráðherra hef­ur ákveðið hvort friðlýsa skuli viðkom­andi menn­ing­ar­minj­ar að feng­inni til­lögu Minja­stofn­un­ar. Um er að ræða aust­asta hluta hins forna Vík­ur­kirkju­g­arðs eins og hann var er garður­inn var aflagður árið 1838. Skyndifriðunin rennur út á mánudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert