Unnur Brá Konráðsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, tekur í dag sæti á Alþingi fyrir Ásmund Friðriksson, alþingismann flokksins úr Suðurkjördæmi.
Unnur Brá starfar sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, skipuð af forsætisráðherra í fyrra, og var henni falið að sinna verkefnisstjórn við endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Hún var þingmaður Sjálfstæðisflokksins 2009 til 2017 og gegndi embætti forseta Alþingis árið 2017.