Veita 30 milljónir fyrir flóttafólk frá Venesúela

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, ræddi við Juan Guaidó, forseta …
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, ræddi við Juan Guaidó, forseta þjóðþings Venesúela í dag og greindi honum frá stuðningi Íslendinga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja þrjátíu milljónum króna til aðstoðar við flóttafólk frá Venesúela, með stuðningi við starfsemi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Er þetta til viðbótar tuttugu milljóna króna framlagi sem var ráðstafað til hjálpar flóttafólki frá Venesúela í samstarfi við SOS-Barnaþorp í lok janúar.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra greindi Juan Guaidó, forseta þjóðþings Venesúela, frá þessu í dag. Ræddi Guðlaugur Þór við Guaidó og greindi honum frá stuðningi ríkisstjórnar Íslands við hann sem forseta til bráðabirgða og framlagi Íslands til mannúðaraðstoðar.

„Við ræddum almennt um stöðuna í Venesúela og mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið beiti sér áfram fyrir frjálsum og friðsamlegum kosningum í Venesúela. Það var gott að geta greint frá fjárhagsstuðningi okkar við flóttafólk frá Venesúela, enda þörfin brýn,“ er haft eftir Guðlaugi Þór í frétt á vef Stjórnarráðsins

Einnig ræddu þeir Guðlaugur Þór og Gauidó áframhaldandi friðsæl mótmæli í Venesúela  og aðgerðir stjórnar Nicolasar Maduro, sem meðal annars hefur komið í veg fyrir að mannúðaraðstoð berist þeim sem á þurfa að halda.

Áður hafði Guðlaugur Þór rætt við Oswaldo Perez og Maríu Carolinu Osorio frá Venesúela sem bæði eru búsett er hér á landi. Þau höfðu sína sögu að segja um hvernig ástandið hefur hríðversnað í Venesúela. Hitabeltissjúkdómar sem ekki hafa sést í landinu láta nú á sér kræla og vannæring og lyfjaskortur veldur aukinni tíðni dauðsfalla bæði meðal barna og fullorðinna, að því er segir í fréttinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert