Ber skylda til að gegna störfum sínum áfram

Jón Steinar Gunnlaugsson.
Jón Steinar Gunnlaugsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Þeim fjórum dómurum Landsréttar, sem tilkynnt var í gær að myndu ekki taka þátt í dómstörfum við Landsrétt eftir dóm Mannréttindadómstólsins í vikunni, ber skylda til að gegna störfum sínum áfram með þeim hætti sem starfsskyldur þeirra mæla fyrir um. Þetta segir Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, í pistli á vefsíðu sinni.

Jón Steinar vísar til þess að í lögum um mannréttindasáttmála Evrópu segi að úrlausnir dómstólsins séu ekki bindandi að íslenskum landsrétti. „Með dóminum um daginn breyttist réttarstaða dómara við Landsrétt því ekki,“ segir hann.

Segir Jón Steinar að niðurstaða Landsréttar um að dómararnir fjórir muni ekki taka þátt í dómstörfum fái ekki staðist. „Þetta eru dómarar sem skipaðir hafa verið til dómstarfa og ber skylda til að sinna þeim meðan þeir gegna embættum sínum,“ segir hann.

Ljóst er að Jón Steinar gefur hvorki mikið fyrir niðurstöðu Mannréttindadómstólsins né Landsréttar. Segir hann ákvörðun Landsréttar sýna að jafnvel „vönduðustu íslensku lögfræðingum hættir til að fara á taugum yfir þessu furðuverki sem dómur MDE er.“

Jón Steinar segir að í aðild Íslendinga að dómstólnum felist ákveðin viðurkenning á að dómar Mannréttindadómstólsins kunni að hafa þýðingu hér, þó að þeir hafi ekki bein réttaráhrif innanlands. „Með því að óska eftir meðferð málsins fyrir yfirdeildinni eru Íslendingar aðeins að gefa dómstólnum sjálfum kost á að leiðrétta mistök sín. Í þeirri leiðréttingu myndi að minnsta kosti felast viðleitni dómstólsins til að ávinna sér traust og virðingu hérlendis, sem undanfarin ár hefur beðið hnekki, þó að ekki hafi fyrr verið svo alvarlegur sem nú.“

Telur hann að ef yfirdeildin muni staðfesta fyrri dóm ættu Íslendingar að huga að viðbrögðum, meðal annars hvort ástæða sé til að skoða aðild að mannréttindasáttmálanum, eða hvort breyta eigi lögum til að tryggja áhrifaleysi dóma dómstólsins. „Svona kannski til að draga úr líkum á taugaáföllum íslenskra lögfræðinga,“ endar hann pistil sinn á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert