Með 37 pakkningar af kókaíni

Konan reyndi að smygla til landsins kókaíni. Mynd úr safni.
Konan reyndi að smygla til landsins kókaíni. Mynd úr safni. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Brasilísk kona á þrítugsaldri var handtekin á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði við komuna til landsins frá Madrid á Spáni grunuð um fíkniefnasmygl. Var hún færð á lögreglustöðina á Suðurnesjum þar sem hún skilaði efnunum og kom í ljós að hún hafði reynt að smygla 37 pakkningum af kókaíni til landsins.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að hún hafi komið efnunum fyrir í leggöngum, maga og meltingarvegi. Samtals var um að ræða 400 grömm af kókaíni. Við skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst hún hafa átt að fá 7.000 evrur eða tæplega eina milljón íslenskra króna fyrir flutninginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert