Flugfreyjur og flugþjónar fá aðstoð

Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, og Drífa Snædal, forseti ASÍ, …
Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, og Drífa Snædal, forseti ASÍ, undirrita samkomulagið. Ljósmynd/ASÍ

Stjórn Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Alþýðusamband Íslands hafa ákveðið að tryggja fé til þess að flugfreyjur og flugþjónar, sem misstu vinnuna við gjaldþrot WOW air, fái lágmarks aðstoð í gegnum Flugfreyjufélag Íslands um mánaðarmótin.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ASÍ. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum munu fyrrverandi starfsmenn WOW air ekki fá nein laun frá fyrirtækinu nú um mánaðarmótin vegna gjaldþrots þess. „Eins og gefur að skilja er það mikið fjárhagslegt högg fyrir þessa einstaklinga. Við erum öll með okkar skuldbindingar og reikninga að borga og það eiga ekki allir varasjóði eða vel stæða ættingja að leita til,“ segir ennfremur og áfram:

Þar sem um er að ræða 35% af félagsmönnum Flugfreyjufélagsins mun ASÍ hlaupa undir bagga fjárhagslega og verða þannig hluti af lausninni. Vonir standa til að hægt verði að inna greiðslurnar af hendi í þessari viku en starfsfólk þarf að koma á skrifstofu FFÍ og framselja kröfu í þrotabúið. Upphæð aðstoðarinnar fer eftir möguleika FFÍ til að afla upplýsinga um marslaun úr þrotabúinu og því er ekki hægt að staðfesta hana sem stendur. Frekari upplýsingar veitir FFÍ til félagsmanna um leið og mögulegt er.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert