ASÍ: Þriðji orkupakkinn „feigðarflan“

Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands. Sambandið leggst gegn samþykkt þriðja …
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands. Sambandið leggst gegn samþykkt þriðja orkupakka Evrópusambandsins. mbl.is/Valli

„Það er forsenda fyrir áframhaldandi uppbyggingu lífsgæða að eignarhald á auðlindum sé í samfélagslegri eigu og að við njótum öll arðs af nýtingu auðlindanna og getum ráðstafað okkar orku sjálf til uppbyggingar atvinnu hér á landi.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) til utanríkismálanefndar Alþingis um þingsályktun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra um að þriðji orkupakki Evrópusambandsins verði samþykktur vegna aðildar Íslands að EES-samningnum.

„Málið hefur verið afar umdeilt meðal þjóðarinnar og kjörinna fulltrúa og verður ekki slitið úr samhengi við umræðuna um hvaða grunnstoðir eigi að vera í samfélagslegri eigu og undanskildar markaðslögmálunum,“ segir ennfremur í umsögninni sem undirrituð er af Drífu Snædal, forseta ASÍ. Lögð er áhersla á að raforka sé grunnþjónusta og eigi ekki að mati sambandsins að vera háð markaðsforsendum hverju sinni líkt og gert sé ráð fyrir samkvæmt orkupökkum Evrópusambandsins.

„Raforka á að vera á forræði almennings og ekki á að fara með hana eins og hverja aðra vöru á markaði. Það er því mat ASÍ að of langt hafi verið gengið nú þegar í markaðsvæðingu grunnstoða og feigðarflan að staðfesta markaðsvæðinguna og ganga lengra í þá átt. Rafmagn er undirstaða tilveru okkar í dag og það er samfélagsleg ábyrgð að tryggja framleiðslu og flutning til allra, sú ábyrgð er of mikil til að markaðurinn fái að véla með hana enda hefur markaðsvæðing grunnstoða yfirleitt ekki bætt þjónustu, lækkað verð né bætt stöðu starfsfólks.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert