Eldur í fjölbýlishúsi í Kópavogi

Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað út.
Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað út. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna elds í fjölbýlishúsi í Funalind 1 í Kópavogi. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafa allar tiltækar sveitir verið sendar á vettvang.

Gríðarlegt álag er nú á slökkviliðinu, sem einnig sendi mannskap vegna rútuslyssins sem varð á Suðurlandsvegi í dag.

Ekki liggur fyrir hversu umfangsmikill bruninn er á þessari stundu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert