Fjölmennt við síðustu útskrift Flugskólans

Flugskóli Íslands útskrifaði 55 nemendur úr sameinuðu atvinnuflugnámi.
Flugskóli Íslands útskrifaði 55 nemendur úr sameinuðu atvinnuflugnámi. Ljósmynd/Erling Ó. Aðalsteinsson

Flugskóli Íslands útskrifaði alls 55 nemendur úr atvinnuflugnámi skólans við hátíðlega athöfn í Háskólabíói á miðvikudag. Var þetta jafnframt síðasta útskrift Flugskóla Íslands, eins elsta starfandi flugskóla landsins, en Keilir keypti rekstur hans fyrr á árinu.

Yfir þúsund nemendur hafa lokið atvinnuflugnámi frá Flugskóla Íslands síðan skólinn hóf starfsemi árið 1998. Nemendur sem útskrifuðust við þessi tímamót voru fyrstu nemendur úr samtvinnuðu atvinnuflugnámi skólans sem hófu nám haustið 2018 í tveimur bekkjum. Þessir nemendur munu síðan ljúka verklegri þjálfun í Flugakademíu Keilis.

Af þeim 55 nemendum sem útskrifuðust við athöfnina voru 16 konur og hlutfall kvenna aldrei verið jafn hátt, en á undanförnum árum hefur kvenkyns nemendum í atvinnuflugi á Íslandi fjölgað ört.

Haukur Marian Suska fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur.
Haukur Marian Suska fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur. Ljósmynd/Erling Ó. Aðalsteinsson

Haukur Marian Suska fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í atvinnuflugmannsnámi með 9,6 í lokaeinkunn. Fékk hann gjafir frá Icelandair, Bluebird Nordic, Air Atlanta, Air Iceland Connect, Norland Air og Flugskóla Íslands.

Semidúx var Arney Sigurgeirsdóttir með 9,58 í lokaeinkunn og munaði því einungis 0,02 stigum á dúx og semidúx skólans. Fékk hún gjafir frá Air Atlanda, Air Iceland Connect, Norlandair og Flugskóla Íslands.

Baldvin Birgisson, skólastjóri Flugskóla Íslands, flutti ávarp við þessa síðustu …
Baldvin Birgisson, skólastjóri Flugskóla Íslands, flutti ávarp við þessa síðustu útskrift skólans. Ljósmynd/Erling Ó. Aðalsteinsson

Baldvin Birgisson, skólastjóri Flugskóla Íslands, og Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis, fluttu ávörp. Reynir Einarsson, yfirkennari í bóklegri deild Flugskóla Íslands, stýrði athöfninni og honum til aðstoðar var Hanna María McClure prófstjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert