Stefnt að því að skattleggja óhollustu

Í aðgerðaáætlun embættis landlæknis er lagt til að skattar á …
Í aðgerðaáætlun embættis landlæknis er lagt til að skattar á sykraða óhollustu verði hækkaðir, en á móti verði álögur á grænmæti og ávexti lækkaðar. mbl.is/Árni Sæberg

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í síðustu viku að skipa starfshóp sem falið verður að innleiða aðgerðaáætlun embættis landlæknis til þess að draga úr sykurneyslu landsmanna.

Aðgerðaáætlunin, sem unnin var að beiðni Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, er í 14 liðum og þar er meðal annars fjallað um að hækka skattlagningu á sykurríkum mat en lækka álögur á ávexti og grænmeti.

Fjallað var um það í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að embætti landlæknis leggi til að hækka verð á gosdrykkjum og sælgæti um að minnsta kosti 20% og að verslanir verði hvattar til þess að hætta með tilboð á óhollustu, þar sem sykurneysla á Ísland sé sú mesta á Norðurlöndum.

Vel skipulagðir skattar séu áhrifarík leið

Heilbrigðisráðherra fjallar um þetta mál í grein í Morgunblaðinu í dag og minnir þar á að í stjórnarsáttmála komi fram að „skoða eigi beitingu efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu“.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

„Á Íslandi, samanborið við hin Norðurlöndin, er mest neysla á sykruðum gosdrykkjum og sykurríkum vörum. Sykraðir gos- og svaladrykkir vega þyngst í sykurneyslu hér á landi en rúmlega þriðjungur (34%) af viðbættum sykri í fæði landsmanna kemur úr þessum vörum. Verð á gosdrykkjum er lágt á Íslandi og lækkaði enn frekar þegar vörugjöld voru afnumin í byrjun árs 2015. Er það andstætt þeirri þróun sem á sér stað í vestrænum löndum þessi misserin,“ skrifar Svandís.

Þá skrifar Svandís að ítrekað hafi komið fram að hlutfall of feitra hér á landi sé hátt og að neysla á sykurríkum vörum auki líkur á offitu og tannskemmdum og að mikil neysla á sykruðum gos- og svaladrykkjum geti einnig aukið líkur á sykursýki af tegund 2.

„Í nýrri skýrslu frá WHO kemur fram að það sé vaxandi vísindalegur grunnur fyrir því að vel skipulagðir skattar á matvæli, ásamt fleiri aðgerðum, geti verið áhrifarík leið til að bæta neysluvenjur. Það er mín skoðun að skattlagning ætti að vera ein af forgangsaðgerðum stjórnvalda til að fyrirbyggja langvinna sjúkdóma,“ skrifar Svandís.

Grein heilbrigðisráðherra í heild sinni

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert